Gullin ást

Líf þriggja para fléttast saman í voninni um að eignast barn. En verður draumurinn einhvern tímann að veruleika? Danielle Steele sýnir hér drauma og þrár fólks, sorg þeirra og missi eins og henni er einni lagið. Diana og Andrew Douglas ætla sér að búa til barn í brúðkaupsferðinni. Löngu seinna, þegar barnið sem þau dreymir um er enn ekki í sjónmáli neyðast þau til að horfast í augu við það hverju þau eru tilbúin að fórna til að láta drauminn verða að veruleika. Charlie Winwood vill fylla húsið af börnum, en kona hans, Barbie Mason, vill aðeins skemmta sér. Þegar Charlie fær niðurdrepandi fréttir þarf hann að endurskoða líf sitt, ekki síst sambandið við konu sem hefur ekki sömu markmið í lífinu og hann. Það eru nítján ár á milli Pilar Graham og Brad Coleman og hann á þegar tvö uppkomin börn. Þegar þau gifta sig fer Pilar skyndilega að sjá eftir að hafa ekki eignast sín eigin börn. Og þá vaknar spurningin: Eiga maður sem er að verða afi og kona um fertugt yfir höfuð að reyna að eignast börn saman? Bókin var aðlöguð að sjónvarpi árið 1995, undir upphaflega titlinum Mixed Blessings.

Danielle Steel er mest seldi lifandi höfundur heims og hefur ritað yfir 200 bækur, þar með taldar skáldsögur, barnabækur, óskáldað efni, ljóðasafn og texta fyrir tónlist. Verk hennar hafa samtals selst í meira en milljarði eintaka um allan heim og hefur hvert þeirra komist á metsölulista á heimsvísu, þar með talið hjá New York Times, Wall Street Journal og The Sunday Times. Franska ríkisstjórnin veitti henni heiðursnafnbótina 'Officier' við reglu lista og bókmennta árið 2002 og 'Chevalier' við regluna 'Legion d'Honneur' árið 2014. Á milli skrifa stundar Steel mannúðarstarfsemi af miklum hug og býr til skiptis í París og San Francisco. Danielle Steel er níu barna móðir.

Weitere Produkte vom selben Autor

Download
ePUB
Öruggt athvarf Danielle Steel

6,99 €*
Download
ePUB
Herzensbrecher Danielle Steel

6,99 €*
Download
ePUB
In jedem Tag ein Anfang Danielle Steel

4,99 €*
Download
ePUB
Country Danielle Steel

12,47 €*