Síðasti draumur eikitrésins gamla

Í þrjúhundruð sextíu og fimm ár hefur gamla eikitréð staðið á sama stað í skóginum. Okkur virðist það óralangt, en fyrir öldunginum er tíminn afstæður og eitt ár virðist jafnast á við einn dag í okkar lífi. Enn annar tímamælikvarði er á lífi dægurflugunnar, sem flögrar í kring um blöð eikarinnar. Þær talast við um tímans rás, en skilja ekki hvor aðra. Þegar hausta tekur færist nótt yfir gamla eikitréð. Það fellir laufin og vefur sig í mjúkan fannarfeld, sofnar og leggst í dvala. Í vetrarsvefninum dreymir það einkennilegan draum, sem reynist vera fyrirboði, eða jafnvel birtingarmynd raunveruleika. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.-

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. 'Síðasti draumur gamla eikitrésins' er ein af jólasögum hans, sem hafa unnið sér stað í hjörtum lesenda um víðan heim. Þar vekur hann náttúruna til lífsins og fær hana á fagran hátt til að spegla veruleika mannanna. Tíminn er afstæður eftir því hvernig er á hann litið, en eilífðin er alltaf sú sama.

Weitere Produkte vom selben Autor

Download
ePUB
The Little Mermaid H.C. Andersen

2,56 €*
Download
ePUB
Sögur um sannleikann H.C. Andersen

3,99 €*
Download
ePUB
Contos de Natal H.C. Andersen

4,99 €*
Download
ePUB
A pequena sereia H.C. Andersen

1,99 €*